Hilmar Pétursson og Munster lögðu Bochum um helgina í Pro A deildinni í Þýskalandi, 90-83.
Hilmar lék rúmar 23 mínútur í leiknum og skilaði 17 stigum, 4 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Munster eru eftir leikinn í 7.-8. sæti deildarinnar með 13 sigra og 3 töp það sem af er tímabili líkt og Karlsruhe.