Í hádeginu var dregið í 16 liða úrslit í karla- og kvennaflokki í Poweradebikarkeppninni. Það voru þau Hildur Sigurðardóttir fyrrum landsliðskona og Gunnar Lár Gunnarsson frá Powerade sem sáu um bikardráttinn í dag. Hildur var hliðholl félögunum sínum, ef svo má að orði komast, því hún dró heimaleiki fyrir Snæfell, KR og Grindavík í kvennaflokki.
Þá kom upp úr bikarskálinni góðu að tveir úrvalsdeildarslagir muni fara fram í karlaflokki en Höttur mun taka á móti Þór Þorlákshöfn og Grindavík fær ríkjandi bikarmeistara Stjörnunnar. Ljóst er svo líka að það muni að minnsta kosti þrjú lið komast í 8-liða úrslit sem ekki leika í úrvalsdeild!
Leikirnir munu fara fram 5.-7. desember næstkomandi.
Poweradebikarkeppnin: 16 liða úrslit karla og kvenna
16 liða úrslit kvenna
Fjölnir-Haukar
Keflavík – Þór Akureyri
Snæfell – Breiðablik
KR – Skallagrímur
Grindavík – Njarðvík
Sitja hjá og fara beint í 8-liða úrslit
Hamar
Valur
Stjarnan
16 liða úrslit karla
Höttur – Þór Þorlákshöfn
Hamar – Njarðvík
Haukar b – KR
Haukar – Ármann
Grindavík – Stjarnan
Reynir Sandgerði – Njarðvík b
Keflavík – Valur
Breiðablik – Skallagrímur
Mynd/ [email protected] – Hildur og Gunnar með bikarskálina góðu í dag.