Undir 16 ára lið stúlkna tapaði í dag sínum öðrum leik á Norðurlandamótinu fyrir heimakonum í Kisakallio í Finnlandi, 51-97.
Karfan ræddi við leikmann liðsins Hildi Björk Gunnsteinsdóttur eftir leik í Kisakallio. Hildur skilaði ágætis framlagi fyrir liðið þrátt fyrir tapið, 10 stigum, 4 fráköstum og 2 stolnum boltum á um 13 mínútum spiluðum.