Undir 18 ára stúlknalið Íslands lagði Danmörku í dag í öðrum leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð, 68-58. Ísland er því enn taplaust á mótinu með tvo sigra, en á morgun kl. 14:00 mæta þær Finnlandi.
Hildur Björk Gunnsteinsdóttir átti fínan leik fyrir Ísland í sigri dagsins, var næst stigahæst með 15 stig og bætti einnig við 7 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil