spot_img
HomeFréttirHildur Björg og UTRGV töpuðu í úrslitum WAC keppninnar

Hildur Björg og UTRGV töpuðu í úrslitum WAC keppninnar

UTRGV skólinn tapaði fyrir New Mexico State University í úrslitum WAC keppninnar nú fyrir skömmu, 53-80. Eftir afar slakan fyrri hálfleik voru Hildur og félagar 20 stigum undir þegar flautað var til hálfleiks, 22-42. Broncs bitu heldur meira frá sér í seinni hálfleik en munurinn orðinn of mikill og mótherjinn of góður, en NMSU var efstur í riðlinum í vetur.

 

Hildur var einu frákast frá því að ná níundu þrennu sinni í vetur en hún skoraði 10 stig og tók 9 fráköst. 

 

NMSU eru því WAC meistarar og fara beinustu leið í lokakeppni NCAA en UTRGV fá hins vegar þátttökurétt í WNIT (Women's National Invitational Tournament) sem er mót sem inniheldur 64 af bestu liðum 1. deildar NCAA kvennaboltans sem ekki komast í lokamótið. Það mót hefst 16. mars næstkomandi og verður í útsláttarformi.

 

Tölfræði leiksins.

 

Mynd: Hildur Björg í undanúrslitaleiknum gegn Bakersfield. (UTRGV)

Fréttir
- Auglýsing -