Ísland tapaði í dag lokaleik sínum í undankeppni EuroBasket 2021 fyrir heimakonum í Slóveníu, 96-59. Slóvenía var fyrir leikinn búnar að tryggja sér þáttöku á lokamótinu, en þær enduðu með fullkominn árangur, 6 sigra og ekkert tap. Ísland endaði á hinum enda riðilsins, með engan sigur og 6 töp.
Karfan ræddi við Hildi Björgu Kjartansdóttur, leikmann liðsins, eftir leik í Stozice Höllinni í Ljubljana. Hildur skilaði fínu framlagi í leik dagsins, 25 stigum og 9 fráköstum á 32 mínútum spiluðum.