Ísland lagði Rúmeníu í gærkvöldi í fjórða leik sínum í undankeppni EuroBasket 2025.
Að öðrum ólöstuðum var Danielle Rodriguez besti leikmaður Íslands í leiknum, en ásamt því að skora glæsileg sigurstig undir lok leiksins spennandi var hún með 25 stig, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar ásamt því að stela tveimur boltum í aðeins sínum öðrum leik fyrir liðið.
Þessi frammistaða Danielle hefur vakið athygli, en á heimasíðu mótsins er hægt að kjósa hana sem verðmætasta leikmann leikdagsins.
Hérna er hægt að kjósa Danielle