Íslandsmeistarar Tindastóls taka á móti Val í lokaleik 4. umferðar Subway deildar karla í Síkinu í kvöld.
Nokkuð þétt dagskrá er á þessum leikdegi í Skagafirðinum bæði fyrir og eftir leik. Hápunkturinn mun þó vera þegar treyja fyrrum fyrirliða liðsins Helga Rafn Viggóssonar verður hengd upp í rjáfur og honum þakkað fyrir þau 22 ár sem hann lék fyrir félagið, en á þeim tíma tókst honum að verða bæði bikar og Íslandsmeistari með liðinu.
Leikurinn hefst kl. 19:15, en treyja Helga verður hengd upp í rjáfur rétt áður en leikurinn byrjar, 19:05.
Mynd: Halldór Halldórsson