21:05
{mosimage}
Helgi Már Magnússon og félagar í BC Boncourt jöfnuðu metin gegn Fribourg í kvöld með sigri 85-83 á heimavelli eftir framlengingu. Fribourg leiddi með 13 stigum í fjórða leikhluta en Boncourt menn náðu að jafna og tryggja sér framlengingu og tryggðu sér sigur í henni.
Helgi Már átti góðan leik og skoraði 21 stig auk þess að taka 6 fráköst.
Næsti leikur fer fram í Fribourg á laugardag.
Mynd: Bluewin