15:14
{mosimage}
(No look sending frá Helga í Reykjanesmótinu sem lauk um helgina)
Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon mun leika með Íslandsmeisturum KR á næsta tímabili. Helgi Már er með opin samning þar sem hann getur farið erlendis ef freistandi tilboð koma uppá borðið hjá honum.
Helgi Már lék síðast með KR-ingum tímabilið 2001-2002 en þá skoraði hann 12,4 stig að meðaltali í leik. Helgi hélt til Bandaríkjanna og lék með Westminester high school í eitt ár áður en hann lék með Catawba Háskólanum þar sem Helgi Már var einn af aðalmönnum. Helgi Már gerðist atvinnumaður að skólanum loknum og lék með Boncourt í Sviss á síðasta ári.
Helgi er vafalítið mikill liðsstyrkur fyrir Íslandsmeistara KR og má ljóst vera að Vesturbæjarliðið verður illt viðureignar í vetur. Heimasíða KR, www.kr.is/karfa ræddi nánar við Helga um málið en viðtalið við hann má lesa á heimasíðu félagsins eða með því að smella hér.
Mynd: [email protected]