9:30
{mosimage}
Helgi Freyr Margeirsson og félagar í Randers Cimbria léku sinn fyrsta æfingaleik á tímabilnu á dögunum þegar þeir léku við Svendborg og sigruðu 83-77
Sigur þessi gefur vonir um að Randers verði í toppbaráttunni í vetur en Svendborg lék til úrslita á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði fyrir Bakken bears.
Helgi Freyr lék ágætlega í leiknum en hann er nýmættur til Danmerkur aftur og hefur því lítið æft með liðinu. Hann hitti þó úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum og 3 af 4 vítum en hann lék í stöðu leikstjórnanda.
Mynd: www.karfan.is