KR-ingar eru komnir í undanúrslit Dominos deildar karla eftir öruggan 21 stig sigur, og sóp í seríunni, á móti lánlausum Keflvíkingum í Blue Höllinni við Sunnubraut. KR-ingar sigldu frammúr í síðari hálfleik með öguðum sóknarleik og ekki síst góðri nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna á meðan vængbrotnir Keflvíkingar áttu í erfiðleikum með að koma fleirum en Michael Craion í gang í sókninni.
Keflvíkingar eru því farnir í sumarfrí á meðan fimmfaldir Íslandsmeistarar KR-inga eru komnir á vegferð þess að elta þann sjötta þar sem þeir mæta að öllum líkindum annaðhvort Njarðvík eða Stjörnunni fari allt eftir bókinni í öðrum viðureignum 8 liða úrslitanna.
Karfan spjallaði við leikmann KR, Helga Már Magnússon, eftir leik í Blue Höllinni.