spot_img
HomeFréttirHelgi Björn til liðs við Hött á Egilsstöðum

Helgi Björn til liðs við Hött á Egilsstöðum

Kkd. Hattar á Egilsstöðum býr sig nú undir þátttöku í Domino's deildinni á komandi leiktíð og samdi í gær við Helga Björn Einarsson um að leika með félaginu í vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

 

Helgi lék með Haukum á síðustu leiktíð og spilaði um 20 mínútu í leik með 4,8 stig og 3,5 fráköst að meðaltali í leik.

 

Þar að auki gekk kkd. Hattar frá samningum við Hrein Gunnar Birgisson, Sigmar Hákonarson, Ásmund Hrafn, Benedikt Hjarðar og Stefán Núma, sem léku með félaginu í 1. deildinni í fyrra.

 

Áður höfðu Eysteinn Bjarni og Mirko Stefán gengið frá samningi við félagið.

 

Mynd: Hafsteinn Jónasson formaður kkd. Hattar og Helgi Björn handsala samninginn. (Höttur)

Fréttir
- Auglýsing -