spot_img
HomeFréttirHelga Einars: Allt eins og það á að vera

Helga Einars: Allt eins og það á að vera

Það fór um marga þegar Helga Einarsdóttir, leikmaður Grindavíkur í Domino's deild kvenna fór út af velli eftir þungt höfuðhögg. Hún setti inn skilaboð á Facebook í gærkvöldi um að allt væri með felldu þrátt fyrir atvikið.

 

"Fékk létt höfuðhögg í leik kvöldsins og fékk forgangsakstur með sjúkrabíl upp á slysó. Veit að ég hræddi marga en búið er að mynda höfuð og háls og allt er eins og það á að vera. Fæ þau forréttindi að gista á einkastofu í nótt og fer endurnærð héðan út í fyrramálið." 

Fréttir
- Auglýsing -