Ekkert fær stöðvað Good Angels Kosice í Slóvakíu en um helgina vann liðið sinn átjánda deildarleik í röð þegar Samorin fékk að kenna á styrk Helenu Sverrisdóttur og félaga. Good Angels eru sem fyrr á toppi deildarinnar og nú með 18 sigra í röð.
Good Angels lögðu Samorin 73-56 þar sem Helena skoraði 13 stig og var stigahæst í leiknum. Hér að neðan má sjá nokkur tilþrif úr sigri Good Angels um helgina.