spot_img
HomeFréttirHelena í 11. sæti í kjöri á Íþróttamanni ársins 2006

Helena í 11. sæti í kjöri á Íþróttamanni ársins 2006

14:12 

{mosimage}

Helena Sverrisdóttir úr Haukum var sá körfuknattleiksmaður sem komst næst því að vera í sjónvarpssal í gær þegar kjör á Íþróttamanni ársins 2006 fór fram. Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hlaut útnefninguna en þeir 10 íþróttamenn sem voru tilnefndi voru mættir til þess að taka á móti viðurkenningum í gær. Helena var í ellefta sæti.

 

Guðjón Valur var Íþróttamaður ársins með 405 stig en Helena hlaut 27 stig í kjöri samtaka íþróttafréttamanna. Næsti körfuknattleiksmaðurinn á eftir Helenu var Jón Arnór Stefánsson en hann fékk 8 atkvæði. Brenton Birmingham, körfuknattleiksmaður ársins úr kjöri KKÍ, var í 19. sæti með 4 stig og Logi Gunnarsson var í 22. sæti með eitt stig.

Þau sem hlutu atkvæði í kjörinu voru:
1. Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur  405 stig
2. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna 333
3. Ólafur Stefánsson, handknattleikur 188
4. Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur 156
5. Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna 135
6. Örn Arnarson, sundmaður 90
7. Ásthildur Helgadóttir, knattspyrna 81
8. Auðunn Jónsson, lyftingar 72
9. Sif Pálsdóttir, fimleikar 70
10. Ragna Ingólfsdóttir, badminton 44
11. Helena Sverrisdóttir, körfuknattleikur 27
12. Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði 24
13. Ívar Ingimarsson, knattspyrna 10
14. Arnar Sigurðsson, tennis 10
15. Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur 8
16. Logi Geirsson, handknattleikur 7
17. Vignir Hlöðversson, blak 6
18. Guðmundur Stephensen, borðtennis 4
19. Brenton Birmingham, körfuknattleikur 4
20. Þórarinn Eymundsson, knapi 3
21. Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur 1
22. Logi Gunnarsson, körfuknattleiksmaður 1
 

Mynd af www.haukar-karfa.is

Fréttir
- Auglýsing -