Njarðvík lagði heimakonur í Haukum í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna í Subway deild kvenna. Staðan eftir leikinn því 2-1, en Njarðvík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri komandi fimmtudag í Ljónagryfjunni.
Karfan spjallaði við Helenu Rafnsdóttur leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ólafssal.