Haukar lögðu Val í gærkvöldi í undanúrslitum VÍS bikarkeppni kvenna í Origo Höllinni. Haukar munu því leika til úrslita í keppninni komandi laugardag gegn Fjölni í Smáranum.
Fyrrum leikmaður Vals, núverandi leikmaður Hauka Helena Sverrisdóttir birti eftir leik gærkvöldsins algjörlega óviðeigandi skilaboð sem leikmenn fengu send eftir leik.
Skilaboðin er hægt að lesa hér fyrir neðan í færslu Helenu, en ekki er annað hægt að lesa út úr þeim en þar sé á ferðinni einhver nokkuð skúffaður með að hafa tapað veðmáli.