spot_img
HomeFréttirHeldur sigurganga Íslands áfram? - Mæta Finnlandi kl. 14:00 í þriðja leik...

Heldur sigurganga Íslands áfram? – Mæta Finnlandi kl. 14:00 í þriðja leik Norðurlandamótsins

Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur í dag sinn þriðja leik á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð, en Ísland leikur fimm leiki á mótinu, gegn Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Noregi og Eistlandi.

Í gær lagði liðið Danmörku með 10 stigum, 68-58 og deginum áður lið Noregs, 62-90.

Í Þriðja leik mótsins mætir Ísland liði Finnlands, en leikurinn verður bæði í beinni útsendingu og lifandi tölfræði kl. 14:00.

Hérna er heimasíða mótsins með dagskrá, lifandi tölfræði og öðrum upplýsingum

Hérna verður hægt að horfa á leiki mótsins í beinni útsendingu

Hérna má sjá lið Íslands á mótinu

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -