Haukar lögðu Grindavík í Subway deild kvenna í spennandi leik í HS Orku Höllinni, 74-78. Eftir leikinn eru Haukar í 2. sæti deildarinnar með 18 stig á meðan að Grindavík er í 5. sætinu með 8 stig.
Karfan spjallaði við Heklu Eik Nökkvadóttur leikmann Grindavíkur eftir leik í í HS Orku Höllinni.