spot_img
HomeFréttir"Heimsfriður" í New York

“Heimsfriður” í New York

 Metta World Peace sem á sunnudag var leystur undan samningi í Los Angeles hefur aðeins einum degi síðar samið við New York Knicks.  Þessi umdeildi en þó öflugi framherji mun því koma til með að spila með sínu heimaliði en kappinn sleit barnskóm sínum í “Eplinu”.  Metta hefur verið allt annað en hefðbundinn í sinni leiktíð og líkast til fáir gleymt hápunkti ferils hans þegar þessi skapheiti leikmaður rauk uppí stúku í Detroit þar sem einn áhorfandi fékk að finna fyrir því, þá sem Ron Artest. 
 
„Mér er sama hvort ég byrji inná eða sópi gólfin. Mig langar bara að vinna,“ er haft eftir World-Peace eftir að fregnir af þessum vistaskiptum hans komu út.  
Fréttir
- Auglýsing -