21:50
{mosimage}
Dirk Nowitzki skoraði 35 stig fyrir Þjóðverja í kvöld
Evrópumótið í körfubolta hófst í kvöld á Spáni. Heimamenn sem eru ríkjandi heimsmeistarar tóku á móti nágrönnum sínum frá Portúgal og tóku þá í kennslustund. Portúgalir sem hafa ekki verið í úrslitakeppni Evrópumóts síðan 1951 byrjuðu leikinn betur og komust í 5-1 en þar með var draumurinn búinn. Spánverjar sigruðu 82-56.
Í hinum leik B riðils komu Lettar á óvart og sigruðu Króata 85-77.
Í A riðli sigruðu Rússar Serba 73-65 og Evrópumeistarar Grikkja unnu Ísrael 76-66.
Dirk Nowitzki skoraði 35 stig fyrir Þjóðverja sem sigruðu Tékka 83-78 í C riðli og Litháen vann Tyrkland 85-69.
Að lokum sigruðu Frakkar Pólverja 74-66 í D riðli og Slóvenar sigruðu Ítali 69-68 í æsispennandi leik.
Mótið heldur svo áfram á morgun og fyrir þá sem hafa aðgang að erlendum sjónvarpsstöðum þá er kannski rétt að líta á listann yfir þær stöðvar sem sýna frá mótinu.
Mynd: www.eurobasket2007.org