Undir 18 ára stúlknalið Íslands mátti þola tap gegn Slóvakíu í dag í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Ploiesti í Rúmeníu, 61-69. Næsti leikur Íslands á mótinu er komandi sunnudag 4. ágúst gegn Austurríki.
Fréttaritari Körfunnar í Rúmeníu tók þær Ísoldi Sævarsdóttur og Heiðrúnu Hlynsdóttur tali eftir leik og spurði þær hvernig mótið leggðist í þær, hvað hefði farið úrskeiðis í dag og hvernig þeim litist á leikinn gegn Austurríki á sunnudaginn.