Árlegur kynningarfundur Subway deildar kvenna fór fram á Grand Hotel í hádeginu í gær. Líkt og venju samkvæmt var spá fjölmiðla og fyrirliða og forráðamanna liða opinberuð á kynningunni.
Hérna er hægt að sjá spár fyrir 2023-24 tímabilið
Karfan var á svæðinu og spjallaði við leikmann nýliða Þórs Akureyri Heiðu Hlín Björnsdóttur um komandi tímabil, stemninguna á Akureyri og spá um misjafnt gengi Þórs.