Alexandra Sverrisdóttir leikmaður Grindavíkur mun hefja komandi tímabil í Subway deild kvenna í eins leiks banni eftir að Aga- og úrskurðarnefnd komst að niðurstöðu í máli er varðaði brottrekstur hennar úr þriðja leik Grindavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitum 6. maí síðastliðinn.
Agamál 57/2023-2024
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærða, Alexandra Sverrisdóttir, leikmaður Grindavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn Njarðvík, sem fram fór þann 6 maí 2024.