spot_img
HomeFréttirHaukur Einarsson vann máltíð

Haukur Einarsson vann máltíð

Af þeim fjölmörgu sem spáðu um úrslit Reykjanesbæjarslagsins á milli Keflavík og Njarðvík í síðustu viku var það Haukur Einarsson bar sigur úr býtum að þessu sinni. Leikurinn fór 91:92 fyrir Njarðvík þar sem Hjörtur Hrafn Einarsson Njarðvíkingur og samstarfsfélagi Hauks skoraði úrslitastigið í leiknum. 
 
Haukur vildi koma fram þökkum til Keflvíkinga fyrir drengilega keppni á leiknum innan sem utan vallar en það þarf vart að taka það fram að Haukur er Njarðvíkingur.  Kappinn mun því skella sér á Olsen á næstu dögum og gæða sér á gómsætum brakandi ferskum “bát” nú eða þá einum safaríkasta borgara Reykjanesbæjar. 
Fréttir
- Auglýsing -