spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHaukar semja við belgískan leikmann

Haukar semja við belgískan leikmann

Haukar hafa samið við hinn belgíska Seppe Despaller fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla.

Seppe er 25 ára, 198 cm framherji sem hefur spilað í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu síðustu ár. Í fyrra vetur lék hann með liði Kortrijk og skilaði þar 7 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik.

Maté Dalmay þjálfari hafði þetta að segja um leikmanninn í fréttatilkynningu félagsins: “Seppe hefur fótahraða og hæð sem okkur þótti vanta í hópinn okkar á undirbúningstímabilinu og þá sérstaklega varnarlega. Hann er síðasta púslið fyrir veturinn og við erum ánægðir að hafa landað samningum í tíma fyrir mót.”

Fréttir
- Auglýsing -