Haukar höfðu betur gegn Grindavík í æfingaleik í Ólafssal, 80-69, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf Bónus deildar kvenna sem hefst um næstu mánaðarmót.
Stigahæstar fyrir heimakonur í Haukum í leiknum voru Tinna Guðrún Alexandersdóttir með 25 stig og Diamond Battles með 24 stig. Fyrir gestina úr Grindavík var Katarzyna Trzeciak stigahæst með 23 stig og Sofie Tryggedsson var henni næst með 15 stig.
Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]