10:11
{mosimage}
(Böðvar hefur gengið til liðs við Hauka á nýjan leik)
Haukar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi vetur en Böðvar Sigurbjörnsson hefur gengið til liðs við liðið. Böðvar er ekki ókunnur Haukum en hann lék með drengja- og unglingaflokki Hauka. Böðvar er Ísfirðingur og hefur leikið með KFÍ og Stjörnunni. Hann frá allt síðasta tímabil vegna meiðsla.
Hann er 25 ára gamall og spilar stöðu framherja.
Böðvar sagði í stuttu spjalli við heimasíðuna að hann væri ánægður að vera kominn í Hauka. ,,Mér líst mjög vel á veturinn, hér er fullt af efnilegum strákum. Ég hef nú verið hér áður en ég spilaði í drengja- og unglingaflokki með Haukum. Þetta er flott félag og það er gott að vera kominn heim.”
mynd og frétt: www.haukar-karfa.is