Haukar b eru komnir áfram í 16 liða úrslit í Poweradebikarnum. Þeir sigruðu Víking Ólafsvík nokkuð örugglega 76-55 í Schenkerhöllinni í dag. Víkingur Ólafsvík byrjaði ágætlega og komust í 5-10 en Haukar B kláruðu svo leikhlutann á 18-5 kafla. Haukar B héldu áfram að auka muninn jafnt og þétt út leikinn og Víkingur Ólafsvík gat engri vörn sér veitt.
Stigahæstir hjá Haukum B voru Marel Örn Guðlaugsson með 21 stig og Sveinn Ómar Sveinsson með 16 stig. Hjá Víkingi Ólafsvík var Guðni Sumarliðason stigahæstur með 18 stig.
“Þetta var æðislegt. Komnir í 16 liða úrslit í fyrsta sinn. Vonandi mætum við bara ekki Haukum í 16 liða úrslitum ef þeir vinna FSu á morgun,” sagði fyrirliði Hauka b kampakátur að leikslokum.
Liðin sem komin eru áfram í 16 liða úrslit
Grindavík, Hamar, Augnablik, Valur, Reynir Sandgerði, Haukar b
K. Bergmann