19:01
{mosimage}
Bakvörðurinn Tony Harris verður ekki með Keflvíkingum gegn Grindavík í Iceland Express deild karla en leikurinn hefst núna eftir nokkrar mínútur eða kl. 19:15.
Harris meiddist í síðasta leik aftan á vinstra læri og var spurning hvort hann næði inn í hópinn fyrir leik kvöldsins en ákveðið var að hann myndi hvíla gegn Grindavík. Keflvíkingar leika því án Harris og Arnars Freys sem er akkúrat núna í myndatöku vegna meiðsla sinna.