Hanna Þráinsdóttir og Georgian Court Lions máttu þola tap fyrir Chestnut Hill í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 42-53.
Það sem af er tímabili hafa Georgian Court unnið fimm leiki og tapað níu.
Á 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Hanna fimm fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 vörðum skotum.
Næsti leikur Hönnu og Georgian Court er komandi komandi laugardag 15. janúar gegn Felician University.