Njarðvíkingar voru afslappaðir á sinni skotæfingu í dag en líkast til undir niðri kraumaði spenningur fyrir morgundeginum. Leikmenn og þjálfari gáfu sér smá tíma í viðtal. Einar Árni sagði að undirbúningur liðsins færi mikið í að æfa sókn gegn svæðisvörn þeirra Keflvíkinga. Elvar Már Friðriksson var sammála að síðasti leikur gegn Keflavík stæði enn í honum og hann langaði til að hefna ófarana þar. Tracy Smith sem fékk nett skot frá Michael Craion fyrr í dag svaraði fyrir sig.