Topplið deildarinnar Hamar stoppaði við í Hólminum í gær til að spila eins og einn leik við Snæfell sem situr í 6. sæti Iceland Express deildar kvenna. Hamarsstúlkur byrjuðu af krafti og komust í 0-10 þegar 5 mín voru liðnar af leiknum og var Kristrún komin með 6 stig en Jaleesa Butler 4 stig. Snæfellsstúlkur voru vægast sagt á hælunum og vantaði alla grimmd í leik þeirra og brá Ingi á það ráð að taka byrjunarliðið útaf. Rósa setti niður þrist sem voru fyrstu stig Snæfells þegar 3:20 voru eftir og staðan var svo 7-17 fyrir Hamar eftir fyrsta hluta.
Snæfellsstúlkur bitu í sig meiri baráttu og náðu að minnka muninn í 21-23 þegar leið á annan leikhluta með pressu sem skilaði þeim fínum leik. Hamarsstúlkur voru ekki að fá eins auðveld skot og áður en þeirra flotholt voru Kristrún og Jaleesa með 12 stig hvor í fyrri hálfleik og settu smá sprett í lokinn og staðan varð 26-33 fyrir Hamar. Hjá Snæfelli voru fleiri að skora en Sade Logan var með 5 stig og Inga Muciniece 4 stig.
Hið sama var uppá teningnum í upphafi þriðja hluta þar sem Hamar réð ríkjum en Snæfell kom ekki boltanum í netið og voru að spila með sínum verri leikjum hingað til. Ekki var það til að kóróna leik Snæfells þegar dómarar leiksins misstu þolinmæðina á Inga Þór þjálfara og dæmdu á hann tæknivillu. Hamar voru komnar í hörkugír áður en Snæfell vaknaði aðeins aftur af værum blundi og fóru að berjast en áttu ekki nóg inni í þá forystu sem Hamar var komið í. Staðan 38-54 fyrir lokahlutann.
Yfirburðir Hamars komu í ljós þegar á leið og þær komust í 20 stiga mun 41-61 þar sem Snæfell hreinlega leyfðu þeim að eiga góðan dag og streittust lítið á móti á sínum verstu köflum. Hamar aftur á móti þáðu góð stig í Hólminum og halda sig á toppnum enn frekar með sigri 54-73 sem hefði getað verið stærri en nógu stór samt.
Hjá Snæfelli voru allar að skora í leiknum en þeirra stigahæst og sú sem reyndi hvað mest var Björg Guðrún með 8/7 frák. Sade Logan 7/4 frák. Alda Leif 7/3 frák/4 stoðs. Hildur Björg 6/4 frák/3 stoðs. Rósa 5 stig. Inga Muciniece 4/4 frák. Berglind Gunnarsd 4/4 frák. Helga Hjördís 4/8 frák. Hrafnhlidur Sif 3 stig. Ellen Alfa, Aníta Rún og Sara Mjöll 2 stig hver.
Stigaskor Hamars dreifðist ekki eins en þær atkvæðamestu voru Jaleesa Butler 24/11 frák. Kristrún Sigrjónsdóttir 18/3 frák/4 stoðs. Slavica Dimovska 13/6 frák/8 stoðs. Íris Ásgeirsdóttir 7 stig. Fanney Lind 6 stig. Regína Ösp og Jenný Harðardóttir 2 stig hvor. Rannveig, Kristrún Antons og Bylgja Sif skoruðu ekki.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og Jakob Árni Ísleifsson.
Umfjöllun: Símon B Hjaltalín.