Hallveig Jónsdóttir mun snúa aftur heim á Hlíðarenda leika með Val á næstkomandi leiktíð. Hún lék með Keflavík í fyrra og lauk tímabilinu með 4,8 stig og 1,6 fráköst í leik. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Val í dag.
Hallveig er með 5,5 stig og 1,9 fráköst að meðaltali á þeim þremur leiktíðum sem hún lék með Val í meistaraflokki.
"Það er mikil ánægja á Hlíðarenda með endurkomu Hallveigar til liðsins," segir í fréttatilkynningunni.