Hallgrímur Brynjólfsson er tekinn við stýrinu hjá meistaraflokki kvenna í Njarðvík. Hallgrímur fær ungt og efnilegt lið í hendurnar sem hafnaði í 6. sæti Domino´s-deildarinnar og missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni og ljóst að á næstu leiktíð verður gerð hörð atlaga að úrslitakeppninni. Hallgrímur hefur áður m.a. stýrt kvennaliði Hamars og þá er hann einnig staddur í miðju þjálfaranámi FIBA.
Hallgrímur tekur við kvennaliði Njarðvíkur
Fréttir