Hálfleikur í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði í oddaviðureign Hauka og Keflavíkur en það eru Keflvíkingar sem leiða 48-53 í hálfleik.
Jafnt var eftir fyrsta leikhluta 26-26 en Guðmundur Jónsson lét vel að sér kveða í öðrum leikhluta og framlagið kom úr fleiri áttum hjá Keflavík heldur en Haukum og því leiddu gestirnir 48-53 í hálfleik.
Skotnýting liðanna í hálfleik
Haukar: Tveggja 41% – þriggja 45% og víti 73%
Keflavík: Tveggja 63% – þriggja 41% og víti 50%
Mynd/ [email protected]/ Kristinn Marinósson og Gunnar Einarsson tóku dans undir lok fyrri hálfleiks sem lauk með því að Gunnar skellti þrist yfir Kristinn.