spot_img
HomeFréttirHákon og Binghamton lutu í lægra haldi gegn Vermont

Hákon og Binghamton lutu í lægra haldi gegn Vermont

Hákon Örn Hjálmarsson og Binghamton Bearcats máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Vermont Catamounts í bandaríska háskólaboltanum, 51-82.

Eftir leikinn eru Binghamton í 3. sæti American East deildarinnar með sjö sigra og fimm töp í deildinni það sem af er tímabili.

Á 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hákon fjórum stigum, stoðsendingu og stolnum bolta.

Næsti leikur Binghamton er þann 12. febrúar gegn New Hampshire Wildcats.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -