spot_img
HomeFréttirHákon atkvæðamikill gegn New Hampshire

Hákon atkvæðamikill gegn New Hampshire

Hákon Örn Hjálmarsson og Binghamton Bearcats máttu þola níu stiga tap í gærkvöldi fyrir New Hampshire Wildcats í bandaríska háskólaboltanum, 69-60.

Eftir leikinn er Binghamton í 4. sæti American East deildarinnar með sjö deildarsigra og sex töp það sem af er tímabili.

Á 12 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hákon 9 stigum, 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Hákons og Binghamton er þann 17. febrúar gegn Albany Great Danes.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -