spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHættur við að taka við Hetti

Hættur við að taka við Hetti

Jóhann Árni Ólafsson mun ekki taka við starfi Einars Árna Jóhannssonar sem annar tveggja þjálfara Hattar með Viðari Erni Hafsteinssyni á komandi tímabili í Bónusdeild karla.

Fyrr í sumar hafði verið tilkynnt um vistaskipti Jóhanns, sem átti að koma til Hattar frá Grindavík, en ekkert verður af þeim vegna persónulegra ástæðna hans og segir félagið það vera mikil vonbrigði. Enn frekar segir í fréttatilkynningu félagsins að undirbúningur vetrarins hafi tekið óvænta stefnu og leiti þeir nú að þjálfara til að fylla skarð Jóhanns.

Fréttir
- Auglýsing -