Það er stutt í tímabilið og úrvalsdeild kvenna virðist ætla að verða þrælöflugt. Í tilefni þess heimsótti Karfan.is systurnar Gunnhildi og Berglindi Gunnarsdætur í Stykkishólminn. Þær fóru ekki í úrslitakeppnina á seinasta tímabili og stefna á að laga það á komandi tímabili.
Við förum aftur í tímann og skoðum upphaf meistaraflokks kvenna hjá Snæfell og hlutverk systranna innan liðsins. Fjölskylda Gunnhildar og Berglindar styðja þær í öllu (jafnvel þegar Gunnhildur fór í Hauka) og krafturinn í fólkinu í Stykkishólmi almennt er ræddur.
Landsliðsverkefnið framundan mun reyna á þær systurnar en þær eru báðar í fantaformi eftir sumarið og tilbúnar að ná sigrum hérna heima í nóvember. Metnaður, samheldni og gleði einkennir þær systurnar og þær tala um það hvernig þær hafa komist svona langt með stuðningi vina, fjölskyldunnar og Snæfells. Njótið vel.
Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson
Dagskrá:
00:00:30 – Systurnar ræða kraftröðunina og næsta tímabil
00:07:20 – Hvar byrjaði karfan hjá Gunnhildi og Berglindi?
00:09:10 – Gunnhildur fer til Hauka og "Gunnarsdóttir"-bolirnir
00:15:30 – Umferðarmiðstöðin Ásklifið, heimili fjölskyldunnar
00:19:20 – Systurnar og systkinin og mismunandi stefnur í lífinu
00:24:30 – Hlutverkin í liðinu og meiðslasaga Berglindar
00:30:05 – Snæfellsliðin og Kristen McCarthy Gunnarsdóttir
00:36:25 – Landsliðið: Að spila saman þar og næsta verkefni í nóvember
00:42:25 – Ferðastandið, að æfa með öðrum liðum í borginni og Ingi Þór
00:49:50 – Gunnhildur samræmir foreldrahlutverkið við afreksmennskuna
00:54:00 – Krafturinn í Hólminum og besti leikur Berglindar á seinasta tímabili
00:59:15 – Metnaður, gleði og samheldni Snæfells (og villur systranna)
01:05:05 – Liðsmenn skipta máli
01:06:45 – Þjálfarar systranna og stuðningur fjölskyldunnar
01:11:15 – Berglind þjálfari, rútínur fyrir leiki og að skoða mistökin sín
01:19:00 – "Það er crucial að skipta í eldri og yngri á æfingum"
01:25:00 – Lokaráð Gunnhildar og Berglindar