spot_img

Guijt áfram hjá Haukum

Haukar hafa gengið frá samningum við Janine Guijt um að leika með liðinu á komandi leiktíð en hún lék með liðinu seinni hluta síðustu leiktíðar. Þetta tilkynnti félagið á dögunum.

Á heimasíðu Hauka segir: „Janine er hollensk landsliðskona en hún hefur einnig verið í kvennaliði Hollands í Fiba 3 á 3 landsliðskeppninni.“

„Hún spilaði 14 leiki fyrir Hauka á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 10,9 stig, tók 2,4 fráköst, og gaf 2,4 stoðsendingar.“

Haukar hafa ekki setið auðum höndum síðan síðasta tímabili lauk en liðið hefur endurheimt tvö leikmenn sem ekki hafa leikið með liðinu síðustu ár. Það eru þær Auður Íris Ólafsdóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir.

Fréttir
- Auglýsing -