13:53
{mosimage}
(Guðmundur Kristjánsson)
Guðmundur Kristjánsson er komin heim aftur til Valsmanna en hann er búinn að leika undanfarin tvö ár í fyrstu deildinni með Trinity Episcopal skólanum í Bandaríkjunum. Guðmundur lék alla yngri flokkana hjá Val áður en hann fór út. Honum gekk vel með skólaliðinum en hann skoraði 10 stig að meðaltali í leik. Hann leikur stöðu bakvarðar/skotbakvarðar.
Þess má geta að Gummi er sonur Kristjáns Ágústssonar sem lék lengi með Val og var meðal annars Íslandsmeistari með Val 1983.