spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindvíkingar staðfesta félagaskipti Sigtryggs Arnars

Grindvíkingar staðfesta félagaskipti Sigtryggs Arnars

Sigtryggur Arnar Björnsson hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Fyrr í dag greindum við frá því að líkur væri á að undirritun færi fram í dag og gekk það eftir. Samningur Arnars við Grindavík er til eins árs 

 

Í tilkynningu Grindavíkur segir: „Það er það öllum ljóst að Arnar mun styrkja flottan hóp til muna en Arnar hefur verið einn besti leikmaður Dominosdeildarinnar síðustu ár og er ljóst að þarna er gríðarlega stór hvalreki að reka á fjörur okkar!“

 

Arnar var með 19,4 stig, 4 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í 26 leikjum á síðustu leiktíð með Tindastól. Sauðkrækingar urðu bikarmeistarar í fyrsta sinn í sögunni á nýliðnu tímabili og var Arnar hluti af því. Arnar var valinn í A-landsliðið á leiktímabilinu en meiðsli komu í veg fyrir að hann tæki þátt í þeim glugga sem nú er nýlokið.

 

Samkvæmt heimildum Karfan.is munu Grindavík, Stjarnan og Skallagrímur hafa sýnt Arnari mestan áhuga og rætt við hann síðustu daga. Eftir fund Arnars og Grindavíkur í gær hafi hann ákveðið að semja við félagið og skrifar hann undir samning í dag. Samningurinn við Grindavík er til eins árs. 

 

Miklar breytingar eru á liði Grindavíkur frá síðustu leiktíð. Dagur Kár, Ingvi Þór, Ómar Örn og Þorsteinn Finnboga hafa allir yfirgefið liðið og þá er ólíklegt að Sigurður Þorsteinsson snúi aftur. Á móti hefur liðið fengið þá Hlyn Hreinsson og Nökkva Harðarson til liðsins auk þess sem efnilegir leikmenn hafa endurnýjað samninga sína hjá liðinu.

 

Nýr liðsfélagi Arnars hjá Grindavík, Ólafur Ólafsson virðist vera hæstánægður með nýjan leikmann liðsins. Eins og sjá má á Tísti sem hann setti inn í kvöld: 
 

Fréttir
- Auglýsing -