spot_img
HomeFréttirGrindavíkurkonur fikra sig nær toppnum

Grindavíkurkonur fikra sig nær toppnum

20:35 

{mosimage}

(Tamara Bowie var að vanda fyrirferðamikil) 

Einn leikur fór fram í Iceland Express deild kvenna í dag þegar botnlið Breiðabliks tók á móti sjóðheitum Grindavíkurkonum sem hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu. Skemmst er frá því að segja að Grindavíkurkonur höfðu 14 stiga sigur í leiknum 57-71. 

Lítið var skorað í upphafi leiks en staðan að loknum 1. leikhluta var 7-15 Grindavík í vil. Í hálfleik var munurinn kominn upp í 20 stig, 21-41. Blikakonur náðu að rétta aðeins úr kútnum í síðari hálfleik og lauk leiknum með 13 stiga sigri Grindavíkur, 57-71. 

Tamara Bowie var stigahæst að vanda í Grindavíkurliðinu með 28 stig og 19 fráköst. Hjá Breiðablik fór Telma B. Fjalarsdóttir á kostum með 21 stig og 18 fráköst. Stigahæst í liði Blika var nýi bandaríski leikmaðurinn Victoria Crawford með 22 stig.  

Grindavíkurkonur eru sem fyrr í 3. sæti deildarinnar en nú með 18 stig og munar aðeins tveimur stigum á þeim og Keflavík en fjögur stig eru í Haukakonur á toppi deildarinnar. Blikar eru í botnsætinu með 2 stig.

Tölfræði leiksins 

[email protected]

Mynd af www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -