spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík semur við fyrirliðann til 2026

Grindavík semur við fyrirliðann til 2026

Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur hefur samið við félagið til næstu tveggja ára.

Ólafur er 33 ára gamall og hefur fyrir utan tvö tímabil sem hann lék á meginlandi Evrópu, leikið fyrir Grindavík síðan 2005, en á síðasta tímabili fór liðið í lokaúrslit úrslitakeppninnar „Við erum með verkefni sem við þurfum að klára. Við vorum hársbreidd frá því í fyrra og maður fer ekkert að bakka út núna. Ég vona bara að Grindvíkingar haldi áfram að mæta í Smárann eins og síðasta vetur. Gerum þetta saman fyrir samfélagið okkar. 240 að eilífu!“ sagði Ólafur um komandi verkefni.

Fréttir
- Auglýsing -