spot_img
HomeFréttirGrindavík jafnar gegn Njarðvík

Grindavík jafnar gegn Njarðvík

sGrindvíkingar sigruðu Njarðvík í fjórða leik liðanna í kvöld í Grindavík. Lokastaðan 81-71 í hörkuleik þar sem Grindvíkingar voru hreinlega hungraðari í sigur.  Sóknarleikur gestanna var á tímum mjög ryðgaður og tilviljunarkenndur þar sem Jeb Ivey sat á boltanum tímum saman og reyndi svo erfið skot. En á sama tíma voru Grindvíkingar að spila hörku vörn og skiluðu mörgum auðveldum körfum eftir fínt spil. Nú er svo komið að oddaleikur verður á Miðvikudag í Ljónagryfjunni og verðum við að sjálfsögðu með útsendingu þaðan. Nánari frétt síðar…

Fréttir
- Auglýsing -