Fimm leikir fóru fram í 2. umferð Dominos deildar karla í kvöld. Úrslitin voru í flestum tilfellum eftir bókinni, þar sem að hæst bar kannski að Tindastóll vann norðulandsslaginn gegn Þór frá Akureyri, 94-82.
Úrslit kvöldsins:
Snæfell 83 – 104 Njarðvík
Stjarnan 63 – 58 ÍR
Tindastóll 94 – 82 Þór Ak.
Skallagrímur 76 – 90 KR
Grindavík 92 – 88 Haukar