spot_img
HomeFréttirGrindavík eru Íslandsmeistari í Ufl. karla 2016

Grindavík eru Íslandsmeistari í Ufl. karla 2016

Grindvíkingar eru Íslandsmeistarar í unglingaflokki karla eftir að hafa sigrað lið FSu nokkuð örygglega í úrslitaleiknum, 71:57 í Keflavíkinni í dag.  Grindvíkingar voru komnir í gott forskot þá þegar í fyrri hálfleik og það forskot toppaði í 28 stigum í þriðja fjórðung. 

 

Leikurinn hófst með látum og mikið skorað á upphafsmínútum. Jafnræði var framan af en þegar á leið hófu Grindvíkingar að slíta sig frá en þó ekki með neinum afgerandi hætti.  Þó strax eftir 10 mínútna leik leiddu þeir gulklæddu með 10 stigum, 23:13 leiddir af þeim Guðmundsonum ( Jón Axel og Ingva) sem höfðu skorað helming stiga liðsins. 

 

Grindvíkingar byggðu svo ofaná þessa forystu í öðrum leikhluta og þrátt fyrir góða baráttu hjá FSu þá voru Grindvíkingar einfaldlega sterkari á þessum fyrstu 20 mínútum leiksins og annar stór hluti sem skildu liðin var Jón Axel Guðmundsson virist ekki hafa mikið fyrir hlutunum en var þó þegar í fyrri hálfleik komin með fína línu í 12 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum. Staðan í hálfleik var 42:25 Grindvíkinga í vil. 

 

Grindvíkingar slökuðu lítið á klónni í þriðja leikhluta og þegar yfir lauk voru Grindvíkingar komnir í 28 stiga forystu og úrslitin nánast ráðin í leiknum og FSu þyrfti í raun á kraftaverki að halda til að eiga möguleika á sigri. Fsu náðu hinsvegar að minnka muninn niður í 20 stig um miðbik fjórða leikhluta. Lengra komust þeir FSu menn ekki í þessum leik og Grindvíkingar lönduðu nokkuð þægilegum og verðskulduðum sigri og eru Íslandsmeistarar í unglingaflokki karla 2016. 

 

Jón Axel Guðmundsson var í algerum sérflokki í sínum síðasta leik á íslandi í bili en hann heldur til Bandaríkjana á næsta tímabili að spila með Davidson háskólanum.  Jón var hársbreidd frá þrennunni en hann skoraði 16 stig tók 13 fráköst og sendi 7 stoðsendingar á félaga sína. Það dugði honum til þess að verða valinn maður leiksins í þessum leik. 

Fréttir
- Auglýsing -