spot_img
HomeFréttirGrimmur lokasprettur Hólmara tryggði þeim tvö stig

Grimmur lokasprettur Hólmara tryggði þeim tvö stig

Valskonur söxuðu í kvöld forskot Keflavíkur niður í fjögur stig á toppi Domino´s deildar kvenna. Snæfell vann sterkan sigur á Val í Vodafonehöllinni en Keflavík lá í Hafnarfirði gegn Haukum. Lokatölur að Hlíðarenda voru 46-60 fyrir Snæfell þar sem Kieraah Marlow og Alda Leif Jónsdóttir gerðu báðar 14 stig í liði Hólmara. Jaleesa Butler var stigahæst í liði Vals með 23 stig og 15 fráköst.
 
Karfan TV ræddi við Inga Þór Steinþórsson að leik loknum í kvöld:
 
 
Heimakonur í Val voru ferskari í fyrsta leikhluta og leiddu 14-11 að honum loknum og Jaleesa Butler komin með 9 stig á 10 mínútum, umtalsvert meira en hún gerði allan bikarúrslitaleikinn gegn Keflavík!
 
Hólmarar opnuðu annan leikhluta og reyndar alla þrjá eftir fyrsta hluta með hvell. 5-0 syrpa í upphafi annars leikhluta breytti stöðunni í 14-14 og var annar leikhluti öllu áferðafallegri en sá fyrsti, meira skorað og meiri hraði. Ragna Margrét Brynjarsdóttir jafnaði leikinn í 26-26 fyrir Val og heimakonur leiddu svo 30-29 í hálfleik en þeim fyrri lauk á ruðningi sem Kieraah Marlow fékk dæmdan á sig við lítinn fögnuð Hólmara sem töldu að brotið hefði verið á henni og fóru gestirnir ekki par sáttir inn í leikhlé og Marlow komin með þrjár villur.
 
Jaleesa Butler var með 19 stig í liði Vals í fyrri hálfleik en Kieraah Marlow var með 10 stig í liði Snæfells.
 
Hólmarar mættu ákveðnir inn í síðari hálfleik, Alda Leif Jónsdóttir skellti niður þrist og Hildur Björg Kjartansdóttir kom með skot við endalínuna skömmu síðar og Snæfell heilsaði með 7-0 hvell áður en Valskonur komust á blað. Valskonur beittu mikið svæðisvörn í þriðja leikhluta og hún fór á stundum illa í gestina sem leiddu engu að síður 42-46 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og unnu því þriðja leikhlutann 12-17.
 
Í fjórða leikhluta kom enn ein óskabyrjun á leikhluta hjá Snæfell, 8-0 hviða og staðan orðin 42-54 fyrir Snæfell þar sem Berglind Gunnarsdóttir gerði sex stig í röð fyrir gestina úr þriggja stiga skotum. Jaleesa Butler gerðu fyrstu stig Vals í leikhlutanum eftir rúmlega þriggja mínútna leik. Sóknarleikur Valskvenna var flatur, mikið mæddi á Butler og lítið mál fyrir sterka Snæfellsvörn að verjast einum leikmanni lengst af. Lokatölur reyndust 46-60 Snæfell í vil þrátt fyrir að Marlow hafi verið í mesta basli í teignum, lítið fékk hún sóknarlega og þegar hún náði skoti voru þau mörg hver sem dönsuðu af hringnum, teignýting í daprari kantinum hjá þessum sterka leikamnni.
 
Þegar öllu er á botninn hvolft vann Snæfell leikinn sem lið á meðan Valskonur gleymdu sér oft og ætluðust til fullmikils af Butler og fyrir vikið brast takturinn.
 
 
Staðan í deildinni
Deildarkeppni
Nr. Lið U/T Stig
1. Keflavík 19/3 38
2. Snæfell 17/5 34
3. KR 14/8 28
4. Valur 12/10 24
5. Haukar 10/12 20
6. Njarðvík 7/15 14
7. Grindavík 6/16 12
8. Fjölnir 3/19 6
  
Fréttir
- Auglýsing -